Collector
Freyr Gígja til dómsmálaráðuneytisins | Collector
Freyr Gígja til dómsmálaráðuneytisins
Fréttastofa RÚV

Freyr Gígja til dómsmálaráðuneytisins

Freyr Gígja Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins til eins árs. Hann lætur af störfum á fréttastofu RÚV í dag og hefur störf í ráðuneytinu 13. apríl. Freyr hefur rúmlega tveggja áratuga reynslu úr fjölmiðlum, fyrst á Fréttablaðinu, en svo á Ríkisútvarpinu síðastliðin 12 ár. Síðustu ár hefur hann verið einn umsjónarmanna Spegilsins. Hann hlaut blaðamannaverðlaun í fyrra og tilnefndur á þessu ári. Freyr er með B.A. próf í almennri trúarbragðafræði. Freyr Gígja Gunnarsson.RÚV / Ragnar Visage

Go to News Site