Collector
„Þetta finnst mér ansi kaldar kveðjur fyrir vinnuframlag síðasta áratugs“ | Collector
„Þetta finnst mér ansi kaldar kveðjur fyrir vinnuframlag síðasta áratugs“
Fréttastofa RÚV

„Þetta finnst mér ansi kaldar kveðjur fyrir vinnuframlag síðasta áratugs“

Ragnari Frey Ingvarssyni hefur verið sagt upp störfum hjá Landspítalanum eftir áratug í starfi. „Ég fékk símtal fyrr í dag frá framkvæmdastjóra á Landspítala þar sem mér var formlega tilkynnt um að starfið mitt væri lagt niður og mér því sagt upp störfum.“ Landspítalinn gaf Ragnari þá skýringu að uppsögnin tengdist sparnaðarkröfu spítalans. Ragnar er í níu mánaða launalausu leyfi og dregur hann því skýringu Landspítalans í efa og mun hann óska eftir rökstuðningi þegar uppsagnarbréf hefur borist til hans. Ragnar segir að ákvörðunin hafi komið honum á óvart, hún rími ekki við þá stöðu sem uppi er á lyflækningadeildum Landspítalans. „Ég veit ekki hvað þú getur sparað margar milljónir á því að segja upp lækni sem er í launalausu níu mánaða leyfi.“ Ragnar hefur í áratug gegnt hinum ýmsu stöðum innan Landspítalans, hann var til að mynda yfirlæknir COVID-deildarinnar. Nú síðast starfaði hann í 33% hlutastarfi sem sérfræðingur í almennum lyflækningum. „Þetta finnst mér ansi kaldar kveðjur fyrir vinnuframlag síðasta áratugs.“ Ragnar segist svekktur yfir ákvörðuninni, hann hafi lagt sitt á vogarskálarnar til þess að betrumbæta heilbrigðiskerfið og hafi einnig verið gagnrýninn og bent á það sem betur mætti fara. Ragnar er einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu og uppskriftir hans hafa notið mikilla vinsælda.

Go to News Site