Fréttastofa RÚV
Ný ríkisstjórn Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins í Færeyjum vill aukna sjálfsstjórn, meðal annars með sjálfstæðri aðild landsins að EFTA og alþjóðlegum samningum, og gera eigin fríverslunarsamninga. Þetta kemur fram í stjórnarsáttmálanum sem var kynntur á blaðamannafundi í morgun. Í sáttmálanum kemur fram að ríkisstjórnin vilji auka sjálfsákvörðunarrétt í sínum málum. Meðal annars á að fara í viðræður við dönsk stjórnvöld um að Færeyingar verði sjálfstæðir aðilar að alþjóðasamstarfi. Kanna á möguleikann á aðild að EFTA og á fríverslunarsamningum við Evrópusambandið og önnur lönd. Í framhaldinu eigi Færeyingar að vera hluti af NATO og allar aðgerðir í öryggis- og varnarmálum sem tengjast Færeyjum verði samþykktar af yfirvöldum þar. Túlka má þetta sem skýr skilaboð til danskra stjórnvalda um aukna sjálfstjórn. Stjórn mynduð yfir miðju Samstarf þessara flokka markar líka nokkur tímamót. Beinir Johannesen, leiðtogi Fólkaflokksins og verðandi lögmaður, vísaði í upphafi blaðamannafundarins í að þarna væri verið að mynda ríkisstjórn yfir miðju – Fólkaflokkurinn er hægri flokkur, Javnaðarflokkurinn miðjuflokkur og Sambandsflokkurinn frjálslyndur sósíalistaflokkur. „Við höfum staðfest það að blokkapólitík eru nú lögð til hvílu,“ sagði Beinir á fundinum. Hann sagði að í þeirri stöðu sem nú sé uppi í Færeyjum sé nauðsynlegt að mynda ríkisstjórnir á breiðari grundvelli, og hann boðar í leiðinni gott samráð og samstarf við stjórnarandstöðuna. Aksel Johannesen, leiðtogi Javnaðarflokksins og fráfarandi lögmaður, sagði að eftir að flokkurinn tapaði töluverðu fylgi í kosningunum hafi hann ætlað að vera í stjórnarandstöðu. Með því að setjast í ríkisstjórn sé hann að leggja sitt af mörkum til ábyrgðarinnar sem fylgi ríkisstjórnarsetu. Aksel er föðurbróðir Beinis verðandi lögmanns.
Go to News Site