Fréttastofa RÚV
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur skipað ríkisstjórn landsins að hefja beinar samningaviðræður við stjórnvöld í Líbanon. Forseti Líbanon sagði fyrr í dag að vopnahlé milli ríkjanna tveggja væri eina lausnin. Í yfirlýsingu frá Netanjahú á samfélagsmiðlinum X segir að hann hafi tekið þessa ákvörðun vegna endurtekinna ákalla frá Líbanon um að hefja beinar samningaviðræður. „Samningaviðræðurnar einblína á afvopnun Hezbollah-samtakanna og að koma á friðarsambandi milli Ísrael og Líbanon.“ Joseph Aoun, forseti Líbanon, sagði fyrr í dag að eina lausnin væri vopnahlé milli Ísraels og Líbanon og beinar viðræður í kjölfarið. „Eina lausnin við stöðunni í Líbanon er að ná vopnahléi milli Ísraels og Líbanon,“ sagði Aoun. Yfir 200 létust og rúmlega þúsund manns særðust í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær.
Go to News Site