Collector
Yfir 300 drepin í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær | Collector
Yfir 300 drepin í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær
Fréttastofa RÚV

Yfir 300 drepin í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær

Að minnsta kosti 303 voru drepnir og 1150 særðust í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanons. Það segir að enn fleiri gætu fundist látnir í rústum húsa sem urðu fyrir loftárásum. Leitar- og björgunaraðgerðir standi enn yfir. Stjórnvöld í Ísrael samþykktu að hefja beinar samningaviðræður við stjórnvöld í Líbanon. Aðalmarkmið þeirra væru afvopnun Hezbolla-samtakanna og að koma á friðarsambandi milli ríkjanna. Björgunarsveitir leita í rústum húsa í Líbanon eftir loftárásir Ísraela síðustu daga. Björgunarsveitarmaður setur peningabúnt í plastpoka sem öryggisvörður heldur á.AP / Hussein Malla

Go to News Site