Collector
Foreldrar þurfi að passa hvernig er talað um mat og holdarfar í kringum unglinga | Collector
Foreldrar þurfi að passa hvernig er talað um mat og holdarfar í kringum unglinga
Fréttastofa RÚV

Foreldrar þurfi að passa hvernig er talað um mat og holdarfar í kringum unglinga

Teymisstjóri átröskunarteymis BUGL segir aukið aðgengi að þjónustu vanta fyrir einstaklinga með átröskun. Sjúkdóminn geti verið erfitt að greina snemma. Karen Daðadóttir, teymisstjóri átröskunarteymis BUGL, segir Barna- og unglingageðdeild Landspítalans eiga í góðu samstarfi við heilsugæslu og önnur þjónustukerfi, þó skerpa megi starfsemina að einhverju leyti. Að mati Karenar vantar aukið aðgengi að þjónustu fyrir einstaklinga með átröskun á fyrri stigum veikinda, því oft séu sjúklingar orðnir mjög veikir þegar þeir leita eftir þjónustu. „Að því sögðu þá er þetta líka mjög lúmskur sjúkdómur og hann er búinn að malla kannski lengi og verður svo allt í einu alvarlegur. Ekki ólíklegt að fólk taki ekki eftir hlutunum fyrr en að það er orðið mjög alvarlegt.“ Hættulegt að djöflavæða fæðuflokka Karen tekur undir ummæli sérfræðinga Kastljóss í gærkvöld þar sem meðal annars var fjallað um mikilvægi þess að foreldrar hugi að því hvernig talað er um holdafar og mat í kringum unglinga. „Ég tek undir ábendingar til foreldra að vera meðvituð um hvernig er talað um holdarfar og mat í kringum unglinga, að vera ekki að djöflavæða ákveðna fæðuflokka eða flokka mikið í hollt og óhollt eða upphefja mikið þyngdartap hjá öðrum til dæmis, mér finnst það góður punktur,“ segir Karen. „Og að vera ekki að tala illa um sinn eigin líkama eða holdarfar annarra í kringum þau, hvort sem það er þyngdaraukning eða þyngdartap hjá fólki. Af því að auðvitað fær fólk líka alveg neikvæðar athugasemdir fyrir mikið þyngdartap.“

Go to News Site