Fréttastofa RÚV
Eftir að Ísland tapaði fyrir Færeyjum, 35-30 í undankeppni EM kvenna í handbolta í gærkvöld varð um leið ljóst að Ísland gæti ekki lengur endað í fyrsta eða öðru sæti riðilsins í undankeppninni. Aðeins tvö efstu sætin eru örugg á EM, en fjögur lið af sex sem enda í 3. sæti sinna riðla í undankeppninni komast líka á EM. Ísland hefur aðeins tvö stig í undankeppninni eftir frækinn heimasigur á Svartfellingum í síðasta mánuði. En til þess að eiga möguleika á því að lenda í þriðja sæti varð Ísland að treysta á að Svartfjallaland ynni Portúgal í undankeppninni í kvöld, því Portúgal hafði fjögur stig fyrir leikinn. Svartfellingar gerðu sitt og unnu Portúgal 34-26. Þar með er ljóst að vinni Ísland leikinn við Portúgal á sunnudag fer íslenska liðið upp fyrir það portúgalska og í þriðja sæti riðilsins. Það mun þá duga fyrir Ísland inn á EM, því þegar reiknaður verður árangur liðanna í þriðja sæti í öllum riðlum verða viðureignirnir við liðin í fjórða sæti núlluð út. Þá mun sigur Íslands á Svartfjallalandi í mars vega þungt. Úrslitaleikur Íslands og Portúgals á sunnudag verður spilaður á Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst klukkan 16:00. Leikurin verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.
Go to News Site