Fréttastofa RÚV
Arnór Snær Óskarsson og félagar í Val eru einum sigri frá því að komast í úrslit Íslandsmótsins í handbolta.Rúv / Mummi Lú Valsmenn eru nú aðeins einum sigri frá því sæti í úrslitum Íslandsmóts karla í handbolta eftir sigur á KA, 33-30 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum. Valur leiðir nú einvígið 2-0, en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Valur spilaði til úrslita í fyrra en tapaði þá úrslitaeinvíginu fyrir Fram 3-0. Þriðji leikur Vals og KA verður spilaður á mánudaginn klukkan 19:00. Annar leikur FH og Hauka í hinni undanúrslitaviðureigninni verður annað kvöld á Ásvöllum en FH er 1-0 yfir þar.
Go to News Site