Fréttastofa RÚV
Tíu tenórar syngja saman í Langholtskirkju í kvöld, á heiðurstónleikum Kristjáns Jóhannssonar sem eru til styrktar Bryndísarhlíð, ofbeldis- og áfallamóttöku í nafni Bryndísar Klöru sem lést árið 2024. Faðir Bryndísar segir að samtakamátturinn sé mikill; það hjálpi í sorginni að syngja. „Ég syng til Bryndísar, ég syng til áhorfenda og til að heiðra Kristján kennara og þannig hugsa ég þetta,“ segir Birgir Karl Óskarsson. „Það hefur hjálpað mér í gegnum sorgina að syngja, ég er í Fóstbræðrum sem eru hérna rétt hjá kirkjunni og það hefur hjálpað mér mikið að syngja með þeim á tónleikum og jarðarförum og fleiru.” Syngur til Bryndísar og til að heiðra Kristján kennara Tíu tenórar syngja saman í Langholtskirkju í kvöld, á heiðurstónleikum Kristjáns Jóhannssonar sem eru til styrktar Bryndísarhlíð, ofbeldis- og áfallamóttöku í nafni Bryndísar Klöru sem lést árið 2024. Faðir Bryndísar segir að samtakamáttinn mikinn. Það hjálpi í sorginni að syngja. „Ég syng til Bryndísar, ég syng til áhorfenda og til að heiðra Kristján kennara, og þannig hugsa ég þetta,“ segir Birgir Karl Óskarsson. „Það hefur hjálpað mér í gegnum sorgina að syngja, ég er í Fóstbræðrum sem eru hérna rétt hjá kirkjunni og það hefur hjálpað mér mikið að syngja með þeim á tónleikum og í jarðarförum og fleiru.” Heiðurstónleikar Kristjáns Jóhannssonar til styrktar Bryndísarhlíð voru haldnir í kvöld. Á tónleikunum sungu tíu tenórar saman, þar á meðal faðir Bryndísar Klöru. Hann segir sönginn hjálpa í sorginni.
Go to News Site