Collector
Íshokkílandslið Íslands í góðum málum | Collector
Íshokkílandslið Íslands í góðum málum
Fréttastofa RÚV

Íshokkílandslið Íslands í góðum málum

Ísland hefur spilað vel í Búlgaríu.ÍHÍ Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hefur farið vel af stað í B-riðli 2. deildar HM í íshokkí í Búlgaríu. Ísland sigraði Kirgistan í dag 6-3 en hafði áður unnið 6-5 sigur á Tapei og Ný-Sjálendinga 6-2. Ísland er á toppi riðilsins með 9 stig en Búlgaría er í 2. sæti með 8 stig. Ísland og Búlgaría mætast einmitt í næsta leik sem er á laugardag og Ísrael svo í lokaleik sínum á sunnudag. Alla jafna færi efsta sætið upp í A-riðil 2. deildar, en þar sem A-riðlinum var aflýst vegna stríðsins í Íran fer ekkert lið upp ú B-riðlinum. Leika átti A-riðilinn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Go to News Site