Collector
Eldur í kartöfluskúr í Skammadal | Collector
Eldur í kartöfluskúr í Skammadal
Fréttastofa RÚV

Eldur í kartöfluskúr í Skammadal

RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds í kartöfluskúr í Skammadal, í Mosfellsdal. Einn dælubíll var sendur á vettvang. Kofinn var alelda þegar slökkvilið kom á vettvang samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slökkvistarf gekk greiðlega og ekki var hætta á að eldur bærist út í nærliggjandi kofa. Kartöfluskúrinn brann til grunna en eldsupptök eru ókunn.

Go to News Site