Collector
Fyrrum utanríkisráðherra lést af völdum áverka | Collector
Fyrrum utanríkisráðherra lést af völdum áverka
Fréttastofa RÚV

Fyrrum utanríkisráðherra lést af völdum áverka

Kamal Kharazi, fyrrum utanríkisráðherra Írans.EPA / Ballesteros Fyrrum utanríkisráðherra Írans, Kamal Kharazi, lést í gær af völdum áverka sem hann hlaut í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 1. apríl síðastliðinn. Ríkisfjölmiðill í Íran greindi frá andláti hans. Kharazi var 81 árs og var yfirmaður alþjóðasamskiptaráðs sem tilheyrir íranska utanríkisráðuneytinu. Þar áður var hann sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og utanríkisráðherra Írans frá árunum 1997–2005 í ríkisstjórn Mohammads Khatami. Eiginkona Kharazi lést í árásinni sem var gerð á heimili þeirra í Teheran.

Go to News Site