Fréttastofa RÚV
Rússar og Úkraínumenn hafa tilkynnt um hlé á árásum vegna páskahalds, en rétttrúnaðarkirkjan heldur upp á páska á sunnudaginn. Vladimir Pútín forseti Rússlands tilkynnti um vopnahléið í gær og sagði að það gildi frá kl. 4 síðdegis á laugardaginn þar til á miðnætti 12. apríl, sem er páskadagur bæði í rússnesku og úkraínsku réttrúnaðarkirkjunni. Volodomir Zelensky forseti Úkraínu tilkynnti í færslu á samfélagsmiðlinum X í gærkvöld að Úkraínumenn virði hlé á árásum um páskana. Hann sagði að fólk þyrfti hlé frá árásum. Zelensky lagði upphaflega til að hlé yrði gert á árásum og kom þessari tillögu á framfæri við Bandaríkin. Átökin í Úkraínu eru nánast í kyrrstöðu Rússar hafa náð litlu landsvæði undanfarið en fórnarkostnaðurinn hefur verið mikill. Úkraínski herinn hefur þó náð til baka landsvæði í Suðaustur-Úkraínu samkvæmt bandarísku hugveitunni Institute for the Study of War (ISW). Greinendur segja ástæður þess megi meðal annars rekja til þess að Rússum hefur verið bannað að nota SpaceX Starlink netbúnaðinn og þá hafa stjórnvöld í Rússlandi reynt að loka fyrir Telegram samskiptaforritið. Hvoru tveggja var mikið notað af hermönnum til samskipta, sérstaklega til að samhæfa drónaárásir. Stjórnvöld í Moskvu setja það sem skilyrði fyrir friðarviðræðum að hersveitir Úkraínumanna hörfi frá borgunum Kramatorsk og Sloviansk án átaka. Þríhliða samningaviðræður milli Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru í ákveðinni pattstöðu enda athygli Bandaríkjanna á Íran þessi dægrin. Stjórnvöld í Moskvu fara fram á að Úkraínumenn gefi eftir landsvæði og geri ýmsa eftirgjöf, sem Zelensky hefur útilokað. Rússar ráða nú yfir rétt rúmlega 19% landsvæðis í Úkraínu, en mestan hluta þess landsvæðis náði herinn að sölsa undir sig á fyrstu vikum innrásarinnar.
Go to News Site