Fréttastofa RÚV
Æðstiklerkur Írans, Mojtaba Khamenei, segir að Íran vilji ekki stríð við Bandaríkin eða Ísrael en muni verja rétt sinn sem þjóð. Þetta kom fram í skriflegri tilkynningu sem íranskur ríkisfjölmiðill birti í gær. Hann bætti við að Íranar ætli ekki að afsala sér lögmætum réttindum undir neinum kringumstæðum og það eigi við alla andstöðu. Talið er að þar sé hann að vísa í Líbanon þar sem Ísraelar hafa gert miklar árásir á Hezbollah-samtökin sem njóta stuðnings Írans. Khamenei hefur ekki enn sést opinberlega frá því að hann var valinn æðstiklerkur í kjölfar þess að faðir hans og fyrrum æðstiklerkur Ayatollah Ali Khamenei, var drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísraels 28. febrúar. Talið er að Mojtaba Khamenei hafi særst í sömu árás.
Go to News Site