Collector
Hæstu launin í fjármálakerfinu en lægstu á hótelum og veitingastöðum | Collector
Hæstu launin í fjármálakerfinu en lægstu á hótelum og veitingastöðum
Fréttastofa RÚV

Hæstu launin í fjármálakerfinu en lægstu á hótelum og veitingastöðum

Hagstofan birti í dag launakostnað á hverja unna stund á síðasta ári. Meðalvinnustundin kostaði atvinnurekendur 8.653 krónur þegar allt var talið: laun, tryggingagjald, mótframlag í lífeyrissjóð, orlofs- og veikindagreiðslur og greiðslur í ýmsa sjóði stéttarfélaganna. Hagstofan greinir kostnað eftir atvinnugreinum. Hæstur var hann á hverja unna stund í fjármála- og vátryggingastarfsemi, 12.004 krónur að meðaltali. Næst komu rafmagns-, gas- og hitaveitur (11.433) og sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi (10.301). Lægstur var kostnaðurinn á gististöðum og í veitingarekstri (6.426) og menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi (7.792). Hæstu launin eru greidd hjá fjármála- og vátryggingafyrirtækjum.RÚV / Ragnar Visage

Go to News Site