Fréttastofa RÚV
Mastersmótið í golfi, fyrsta risamót ársins í karlaflokki, hófst í gær á Augusta National vellinum í Georgíuríki Bandaríkjanna. Norður-Írinn Rory McIlroy, sem vann mótið í fyrra, byrjaði mótið vel í ár. Hann lék fyrsta hring á 5 höggum undir pari og er efstur eftir fyrsta hring ásamt Sam Burns frá Bandaríkjunum. Næstir koma Kurt Kitayama, Jason Day og Patrick Reed á þremur undir pari en aðeins 16 af 91 keppanda mótsins léku undir pari á fyrsta hring. Keppni heldur áfram í dag og mótinu lýkur svo á sunnudag þegar sigurvegarinn verður klæddur hinum sögufræga græna jakka mótsins. Norður Írinn Rory McIlroy fagnar fugli á 15. braut Augusta National í gær.AP / David J. Phillip
Go to News Site