Collector
Hættir sem bæjarstjóri á Skaganum og fer í framboð í Hvalfjarðarsveit | Collector
Hættir sem bæjarstjóri á Skaganum og fer í framboð í Hvalfjarðarsveit
Fréttastofa RÚV

Hættir sem bæjarstjóri á Skaganum og fer í framboð í Hvalfjarðarsveit

Haraldur Benediktsson hætti í dag sem bæjarstjóri á Akranesi og tilkynnti um leið að hann færi í framboð í Hvalfjarðarsveit. Tveir listar verða í framboði á kjördag. Haraldur hefur verið bóndi í Hvalfjarðarsveit og sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í tíu ár þar til hann var ráðinn bæjarstjóri 2023. Haraldur lét af störfum sem bæjarstjóri í hádeginu í dag. Hann sagði í samtali við fréttastofu að formlegur félagsskapur fólks stæði að framboðinu og hefði skilað inn framboðslista klukkan ellefu. Félagið nefnist Samhent sveit og fær listabókstafinn A. Áður hafði Íbúalistinn tilkynnt um framboð í Hvalfjarðarsveit. Því er ljóst að heimamenn kjósa milli tveggja framboða. Engir framboðslistar voru í kjöri síðast og því var persónukjör þar sem allir voru gjaldgengir. Skagamenn hafa lýst miklum áhuga á sameiningu við Hvalfjarðarsveit en minni áhuga hefur gætt þar. Haraldur segir að horft verði til skoðanakönnunar sem lögð verður fyrir kjósendur samhliða sveitarstjórnarkosningum. Þar gefist fólki færi á að segja til um hvernig það vilji sjá stöðu Hvalfjarðarsveitar og tengslin við nágrannasveitarfélögin þróast. Haraldur segir nýja framboðið ekki hafa rætt afstöðu sína til sameiningar en kvað fólkið samhent um nánara og betra samstarf við nágrannsveitarfélagið. Vill verjast hugmyndum um hvalrekaskatt Haraldur tilkynnti um vistaskipti sín með færslu á Facebook. Hann sagði nýja framboðið vilja laða fólk til búsetu í sveitarfélagi sem hefði upp á margt að bjóða og hefði á 20 árum vaxið frá hefðbundnu sveitasamfélagi til kröftugrar byggðar. „Fyrst og fremst er áhugi minn og vilji að vera í hagsmunagæslu, hagsmunabaráttu og þjónustu fyrir mitt nærsamfélag – stuðla að því að sveitarfélagið haldi áfram að reka öfluga skóla með okkar góða fagfólki og sterka velferðarþjónustu, ásamt því að halda áfram metnaðarfullri uppbyggingu innviða til framtíðar í takt við stækkandi sveitarfélag og íbúaþróun,“ skrifaði Haraldur. „Erindi mitt er líka að taka til varnar fyrir samfélagið – að því er sótt með áformum stjórnvalda um „hvalrekaskatt“ sem mun bitna alvarlega á fjárhag sveitarfélagsins. Áform um að svipta sveitarfélagið fasteignaskatti af stóriðju hafa verið birt á samráðsgátt stjórnvalda. Við skulum þora að ræða hugsanlegar afleiðingar þess sem gætu þýtt harkalegan samdrátt í þjónustu sveitarfélagsins og jafnvel minni vilja íbúa til að heimila frekari uppbyggingu á Grundartanga.“ Sveitarstjórinn hættir Starfslok Haraldar á Akranesi eru ekki þau einu sem var tilkynnt um hjá sveitarstjórum á Vesturlandi í dag. Kollegi hans í Hvalfjarðarsveit, Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, tilkynnti í morgun á heimasíðu sveitarfélagsins að hún hyggist láta af störfum í lok kjörtímabilsins. Linda Björk hefur verið sveitarstjóri í átta ár en hyggst nú halda til annarra starfa.

Go to News Site