Fréttastofa RÚV
Tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2026 voru kynntar í dag. Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían hefur veitt verðlaunin árlega frá 1999. Árið 2024 voru kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin aðskilin og Edduverðlaunin hafa því undanfarin tvö ár aðeins veitt verðlaun fyrir kvikmyndir. Í byrjun þessa árs var tekin sú ákvörðun að Edduverðlaunin skulu einnig verðlauna fyrir leikið sjónvarpsefni en Sjónvarpsverðlaunin halda áfram að verðlauna fyrir annað sjónvarpsefni. Tilnefnt var í 35 flokkum fyrir kvikmynda- og sjónvarpsverk sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2025. Einnig verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt ásamt því að uppgötvun ársins hlýtur viðurkenningu, þau verðlaun fær einstaklingur sem ekki hefur áður hlotið tilnefningu í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu. Kvikmyndin Ástin sem eftir er hlaut flestar tilnefningar, eða 13 talsins. Eldarnir hlaut 12 tilnefningar og The Damned 8. Af leiknu sjónvarpsefni hlutu þættirnir Felix & Klara flestar tilnefningar eða 11 talsins, King and Conqueror hlaut 11 og Vigdís 9. Alls bárust 51 verk og 256 innsendingar til fagverðlauna. Í ár var einnig bætt við 15 nýjum flokkum fyrir leikið sjónvarpsefni og fagverðlaun þeim tengdum. Innsendar voru þrettán heimildamyndir, sjö heimildastuttmyndir, ellefu stuttmyndir, sex kvikmyndir í fullri lengd, tíu leiknar sjónvarpsþáttaseríur, og sjö erlendar kvikmyndir. 44 einstaklingar sátu í níu valnefndum fyrir hina 35 verðlaunaflokka. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða. Edduverðlaunin verða afhent í lok maí.
Go to News Site