Fréttastofa RÚV
Góðan daginn framboð býður fram í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor. Fulltrúar flokksins skiluðu framboðslista til kjörstjórnar rétt fyrir klukkan tólf í dag, stuttu áður en framboðsfresturinn rann út á landsvísu. Oddviti flokksins er Ingimar Þór Friðriksson tölvunarfræðingur. Annað sætið skipar Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir leiðtoga- og teymisþjálfi. Í þriðja sæti er Tofi Markússon, sérfræðingur í ráðningar- og mannauðsmálum. Framboðið átti sér stuttan aðdraganda Ingimar Þór segir aðdraganda framboðsins hafa verið skamman en skemmtilegan. „Við vildum í rauninni ekki vera að láta vita af þessu fyrr en að þetta væri allt 100%. Við fórum ekki í meðmælasöfnunina fyrr en við vorum með allt klárt en auðvitað hafði þetta mjög skamman fyrirvara.“ Að sögn Ingimars er Torfi Markússon upphafsmaður framboðsins. Hann segir Torfa nálgast málefni borgarstjórnar með nýjum hætti. „Hann horfir á borgarstjórn sem starfsmenn borgarana og það er þörf á að finna hæfa starfsmenn í borgarstjórn,“ segir Ingimar og vísar til Torfa sem stakk upp á því að hann tæki oddvitasætið. „Hann er nú einn af þekktustu ráðningarsérfræðingum landsins og hann notaði svona hausaveiðar má segja, til að finna gott starfsfólk, og þetta var niðurstaðan.“ Vilja aukið ákvörðunarvald íbúa Ingimar segir stefnumál flokksins snúa að því að vinda ofan af ýmsu sem illa hafi verið gert í Reykjavíkurborg á undanförnum árum. „Meðal annars erum við að horfa á reksturinn og við erum að horfa á þjónustuna sem er kannski helsta stefnumálið, að laga þjónustu borgarinnar. Það er meginmarkmið sveitarfélagsins og eðlilegt að horfa stíft á það að laga það.“ Hann bætir því við að Góðan daginn framboð sé skynsemisframboð. Fulltrúar flokksins vilji ekki öfgar, heldur vilji þeir fela íbúum Reykjavíkur aukið ákvörðunarvald. „Fyrst og fremst erum við að horfa á að borgarstjórn skuli vera óháð. Okkur finnst hún vera of háð flokkum sem eru að teygja skoðanir borgarfulltrúa á meðan að borgarfulltrúar eiga fyrst og fremst að vera að horfa til skoðana íbúa,“ segir Ingimar. Þegar skila átti framboðslistum í dag kom í ljós að framboðið vantaði nokkrar undirskriftir. Flokkurinn hefur fengið frest þangað til á morgun til að greiða úr því og telur Ingimar að það náist auðveldlega. „Í rauninni hófum við meðmælasöfnunina upp úr klukkan níu í gærkvöldi og það vantar einhverjar nokkrar undirskriftir þar. Ég held að þetta séu í kringum 19 undirskriftir sem vantar af þessum 160 sem er lágmarkið og ég held að við förum alveg auðveldlega með það.
Go to News Site