Collector
Stjörnum prýtt tónlistarmyndband Laufeyjar | Collector
Stjörnum prýtt tónlistarmyndband Laufeyjar
Fréttastofa RÚV

Stjörnum prýtt tónlistarmyndband Laufeyjar

Tvær skærustu stjörnur síðustu mánaða leika í tónlistarmyndbandi Laufeyjar við lag hennar Madwoman sem kemur út á mánudag. Það eru annars vegar bandaríski listskautarinn Alysa Liu og kanadíski leikarinn Hudson Williams. Madwoman er hluti af viðhafnarútgáfunni, A Matter of Time: The Final Hour , sem kom út í dag. Upprunalega platan kom út í fyrra og hlaut Grammy-verðlaun í febrúar. Alysa var ein bjartasta von listskautaheimsins þegar hún settist óvænt í helgan stein þegar hún var 16 ára. Tveimur árum síðar sneri hún aftur og vann tvenn gullverðlaun á síðustu Vetrarólympíuleikum, önnur þeirra fyrir atriði við lag Laufeyjar, Promise . Hudson Williams skaut á einni nóttu upp á stjörnuhimininn þegar íshokkísjónvarpsþættirnir funheitu Heated Rivalry slógu í gegn. Þau Williams og Liu eiga þó fleira sameiginlegt en ísilagðan ferilinn. Þau eru bæði af blönduðum uppruna, rétt eins og Laufey. Það sama gildir um leikkonuna Lolu Tung og KATSEYE-söngkonuna Megan Skiendiel, sem einnig koma fram í myndbandinu. Það er freistandi að telja það til himinstöðu frægðarsólar Laufeyjar að hún fái slíkar stjörnur til liðs við sig, en mögulega er það enn frekar til marks um stöðu Liu og Williams að þau fái að birtast við hlið tvöfalda Grammy-verðlaunahafans frá Íslandi.

Go to News Site