Fréttastofa RÚV
Tímabundnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar eru jákvætt inlegg að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífisins. Hann setur þó spurningamerki við lögbundið eftirlit með fyrirtækjum. „Að sjálfsögðu munu fyrirtækin skila lækkun virðisaukaskattsins út í eldsneytis lítraverðið, það þarf ekkert að hafa áhyggjur af því. En að það þurfi sérstakt lögbundið eftirlit með því er eitthvað sem maður staldrar við,“ segir Bjarni Benediksston framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Þetta eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar Tímabundnar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið kynntar. Aðgerðirnar eru þrjár og taka gildi 1. maí og renna út 31. ágúst á þessu ári. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra sagði þær skapa ráðrúm til þess að þróa langtíma aðgerðir. Lækkun á dælu: Með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11% á eldsneyti af dælu Vöktun á verðlagningu: Með tímabundnu lagaákvæði sem skyldar söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og felur Samkeppniseftirlitinu að vakta að þetta sé gert. Með því að styrkja verðlagseftirlit ASÍ um 15 milljónir til að hafa sérstakt eftirlit í sumar með verðlagningu á öllum helstu tegundum dagvöru og þjónustu. Fjölgun hleðslustöðva um land allt: Með 500 milljóna átaki strax í sumar til að fjölga hleðslustöðvum við fjölbýlishús og gististaði og „loka hleðslugatinu“ hringinn í kringum landið. Lagafrumvarp um lækkun virðisaukaskatts á dælu og vöktun á verðlagningu verður lagt fram á Alþingi í næstu viku. Fjölgun hleðslustöðva verður styrkt með framlögum úr loftslags- og orkusjóði sem verða kynnt á næstu dögum. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins segir skjóta skökku við að hafa eigi sérstakt lögbundið eftirlit með fyrirtækjum. En aðgerðirnar sem kynntar voru í dag séu þó jákvætt innlegg. Hann segir SA fagna því að stjórnvöld sýni að þau geti haft jákvæð áhrif á þróun verðlags. „Sem er lykilþáttur hvað varðar forsenduákvæði kjarasamninga þróun verðlagsins núna um þessar mundir stendur þannig að forsenduákvæði kjarasamninga standa tæpt skulum við segja og munu áfram gera það þrátt fyrir þessar aðgerðir en þetta er jákvætt innlegg.“ En best hefði þó verið að byrja heima hjá sér, eins og Bjarni orðar það. „Þetta innlegg kemur í framhaldi af því að þessi sömu stjórnvöld þau hækkuðu eldsneytis lítrann með tuttugu og fimm prósent hækkun kolefnisgjalds um áramótin, hækkun vörugjalda um áramótin. Hækkun skatta á leigutekjur um áramótin munu smám saman seytla út í leiguverð og síðan hækkuðu gjaldskrár ríkisins sömuleiðis um 3,7% um áramótin og auðvitað haft áhrif í hina áttina, en þetta er gott skref engu að síður.“ Lengri útgáfu af viðtalinu við Bjarna má sjá hér að neðan. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins segir skjóta skökku við að hafa eigi sérstakt lögbundið eftirlit með fyrirtækjum. En aðgerðirnar sem kynntar voru í dag séu þó jákvætt innlegg. Almenningur þurfi að taka þátt Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambandsins, segir 15 milljóna styrk til ASÍ til að hafa sérstakt eftirlit með verðlagningu í sumar geta haft meira vægi þegar komi að vísitöluhækkunum en lækkunin á bensíni, taki almenningur þátt. „Ef við getum verið öflugri og ef almenningur er vel á verði og tekur á með okkur og verslar við þá sem ekki hækka vöruverð eða draga til baka sínar verðhækkanir,“ segir Finnbjörn. Hann segist líta á aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem upptakt að því að hún fari í viðræður við aðila vinnumarkaðarins um það að ná niður verðbólgu og þar af leiðandi styrkja kjarasamningana sem gerðir voru 2024 svo að forsendur þeirra náist. „Þetta eru aðgerðir sem eru að lækka verðbólguna og við fögnum því. En þetta er bara upptakturinn, byrjunin, og ég horfi til þess að við eigum töluvert mikið spjall fyrir höndum um það hvernig við getum svo til langframa lækkað verðbólguna.“ Hann segir ASÍ þó hafa farið örðuvísi að en með lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. „Við hefðum skoðað húsnæðisþáttinn sem er miklu stærri þáttur í vísitölunni. Við hefðum skoðað hvort það væri hægt að setja á leigubremsu. Leiga er orðin mjög dýr og er að sliga mikið af fólki á leigumarkaði. Það hefur líka víðtæk áhrif inn í vísitöluna,“ segir Finnbjörn Hermannsson. Viðtalið við Finnbjörn má sjá hér að neðan. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins segir skjóta skökku við að hafa eigi sérstakt lögbundið eftirlit með fyrirtækjum. En aðgerðirnar sem kynntar voru í dag séu þó jákvætt innlegg.
Go to News Site