Collector
Verzlunarskólinn sigurvegari Gettu betur 2026 | Collector
Verzlunarskólinn sigurvegari Gettu betur 2026
Fréttastofa RÚV

Verzlunarskólinn sigurvegari Gettu betur 2026

Verzlunarskóli Íslands sigraði Menntaskólann í Reykjavík í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Verzló sigraði með 35 stigum gegn 26 stigum MR eftir æsispennandi keppni. Staðan eftir hraðaspurningar var hnífjöfn og var spennan áþreifanleg í salnum. Úrslitin réðust svo þegar Verzlunarskólinn svaraði annarri vísbendingaspurningu kvöldsins í fyrstu vísbendingu og hlaut fimm stig fyrir. Verzlunarskólinn hefur nú bæst í hóp þeirra skóla sem hafa unnið keppnina næstoftast. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipuðu þau Hulda Filippía Andradóttir, Dóróthea Margrét Jakobsdóttir og Davíð Friðriksson Magnus.

Go to News Site