Collector
Allt í jánum í fyrsta leik Bestu deildarinnar | Collector
Allt í jánum í fyrsta leik Bestu deildarinnar
Fréttastofa RÚV

Allt í jánum í fyrsta leik Bestu deildarinnar

Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Kristófer Ingi Kristinsson byrjaði leikinn af miklum krafti þegar hann kom gestunum í Breiðabliki yfir á fjórðu mínútu leiksins eftir gott samspil hans og Ágústs Orra Þorsteinssonar. Víkingar virtust ekki finna sinn takt í fyrri hálfleik en liðið fékk eitt dauðafæri á 28. mínútu þegar Gylfi Þór Sigurðsson skaut aukaspyrnu á Nikolaj Hansen sem var vel staðsettur fyrir framan mark Blika. Boltinn rataði hins vegar framhjá markinu. Blikar fóru með forskotið inn til búningsklefa, 0-1. Lið Víkings kom beittara inn í síðari hálfleik. Jöfnunarmark Víkinga kom á 71. mínútu þegar Anton Ari Einarsson, markvörður Blika sendi boltann fyrir slysni á Gylfa Þór sem sendi boltann rakleitt í markið, 1-1. Víkingar fengu ágæt færi undir lok leiksins en jafntefli varð lokaniðurstaðan í spennandi leik. Liðunum er spáð efstu sætum deildarinnar í vetur en þau hafa skipst á að vinna titilinn undanfarin fimm ár. Fimm leikir eru á dagskrá fyrstu umferðarinnar á sunnudag.

Go to News Site