Fréttastofa RÚV
Ellefu flokkar skiluðu framboðslistum til yfirkjörstjórnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í næsta mánuði. Framboðsfrestur rann út í dag. Oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík segir að úrskuðað verði um gildi framboða á morgun. Nokkrir flokkar með frest til morguns Yfir sextíu sveitarfélög eru á landinu öllu og má því gera ráð fyrir að nóg verði að gera hjá kjörstjórnum við að fara yfir framboðslista og fylgigögn. Endanlegir listar verða kynntir eftir helgi. Hvernig hefur þetta gengið hjá ykkur það sem af er degi? „Bara mjög vel. Við erum búin að taka á móti ellefu framboðum og nú hefst vinna við að fara yfir öll framboðin og fylgigögnin og athuga hvort allt sé ekki eins og það á að vera. Og það verður úrskurðað um gildi framboða á morgun,“ segir Eva Bryndís Helgadóttir, oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík. Hún segir að smávægileg atriði hafi vantað upp á hjá nokkrum flokkum. Þeir hafi fengið frest til morguns til að skila inn gögnum. Nýtt framboð Klukkan hálftólf höfðu tíu flokkar skilað inn listum en rétt áður en framboðsfresturinn rann út á hádegi mættu fulltrúar nýs framboðs, Góðan daginn framboðsins . „Við vildum ekki láta vita af þessu fyrr en þetta væri allt 100 prósent. Í rauninni þá hófum við meðmælasöfnunina klukkan upp úr níu í gærkvöldi og það vantar nokkar undirskriftir þar. Og við fengum frest fram til ellefu á morgun og ég held að það náist auðveldlega,“ segir Ingimar Þór Friðriksson, oddviti Góðan daginn framboðsins. Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í næsta mánuði rann út í dag. Ellefu framboð hafa skilað inn lista í Reykjavík. Fulltrúar nýs framboðs skiluðu inn lista rétt áður en fresturinn rann út. Vinna hófst um leið og framboðsfresti lauk Samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórnum fjölmennustu sveitarfélaganna skiluðu fimm flokkar inn framboðslistum í Reykjanesbæ, sex í Hafnarfirði, sex í Garðabæ, sjö í Kópavogi og átta á Akureyri. Helga Guðrún Eymundsdóttir, formaður kjörstjórnar á Akureyri, segir vinnu hafa hafist um leið og framboðsfresti lauk í hádeginu. „ Við erum búin að vera núna síðan að framboðin skiluðu þá erum við að fara að bera saman kennitölur frambjóðenda við Þjóðskrá, hvort þeir hafi ekki lögheimili á Akureyri,“ segir Helga Guðrún Eymundsdóttir, formaður kjörstjórnar á Akureyri. „Síðan förum við yfir meðmælendaskrána og athugum hvort það eru einhverjir frambjóðendur sem eru búnir að mæla með sjálfum sér, sem er ekki leyfilegt. Þannig við erum að taka þá í burtu. Svo eru örfáir aðilar sem eru með lögheimili á Akureyri en eru búnir að óska eftir að fá að kjósa í Grindavík. Þannig að við þurfum að tékka á því hvort að þeir séu meðmælendur.“
Go to News Site