Fréttastofa RÚV
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðist til að beita „öllu efnahagslegu afli“ Bandaríkjanna til að hjálpa Ungverjalandi, styðji kjósendur bandamann hans, Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands, í kosningunum næstkomandi sunnudag. „Við erum spennt að fjárfesta í framtíðarvelmegun sem mun skapast undir áframhaldandi forystu Orbans,“ segir Trump á samfélagsmiðlum. Viktor Orban stendur frammi fyrir erfiðri baráttu en skoðanakannanir benda til þess að stjórnarflokkur hans tapi fyrir stjórnarandstöðuflokknum Tisza, eftir sextán ár í valdastóli. Vance kom í heimsókn Peter Magyar, leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins, hefur sakað Bandaríkin um afskipti af kosningunum, en JD Vance varaforseti Bandaríkjanna heimsótti Ungverjaland í vikunni til að undirstrika stuðning við Orban. Vance hefur hins vegar sakað Evrópusambandið um afskipti af kosningunum. Orban, náinn bandamaður bæði Trumps og Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, hefur stýrt Ungverjalandi síðan árið 2010. Á þessum tíma hefur stjórnarbandalag hans notað meirihluta sinn á þingi til að endurskoða kosningakerfi landsins og nýta ríkisfjármuni til kosningabaráttu. Bandamenn forsætisráðherrans í viðskiptalífinu hafa á sama tíma gjörbreytt fjölmiðlaumhverfi landsins.
Go to News Site