Fréttastofa RÚV
Sænski herinn fylgir nú eftir rússneskum kafbáti í Eystrasalti. Flugáhöfn um borð í sænskri JAS 39 Gripen orrustuþotu sá fyrst til kafbátsins í Kattegat og í samvinnu við bandamenn er verið að fylgja kafbátnum eftir sem er á siglingu inn Eystrasaltið, samkvæmt fréttatilkynningu sem birt var á heimasíðu sænska hersins í gærkvöld. Kafbáturinn er af gerðinni Kilo-klass, sem er árásarkafbátur. Kafbáturinn siglir á alþjóðlegu hafsvæði og hefur ekki siglt inn í sænska lögsögu, samkvæmt frétt á sænska dagblaðsins Göteborgs-Posten . Upplýsingafulltrúi sænska hersins, Jonas Beltrame-Linné, tiltók ekki hvaða bandamenn tækju einnig þátt í eftirförinni en sagði að samstarfið væri meðal þjóða Atlantshafsbandalagsins. Sænski herinn mun fylgja kafbátnum eftir inn Eystrasaltið.
Go to News Site