Fréttastofa RÚV
Geimfarið, sem nefnt var Integrity eða Heilindi af áhöfninni, náði mest 30-földum hljóðhraða á leið sinni til jarðar. Hitaskjöldurinn utan um geimfarið náði um 2760 gráðum á Celsíus sem er nær helmingur hitans á yfirborði sólarinnar. Yfirmaður áhafnarinnar, Reid Wiseman, tilkynnti við lendingu að áhöfnin væri græn , eða við mjög góða heilsu. Þar með lauk geimferð fjórmenninganna sem hófst í Flórída 1. apríl og tók níu daga, eina klukkustund, 31 mínútu og 35 sekúndur. Áhöfnin var flutt úr geimfarinu um klukkan hálf tvö að íslenskum tíma og um borð í herskip. Eins og nærri má geta var þeim fagnað vel þegar þau stigu frá borði eftir vel heppnaðan leiðangur. Geimfar Artemisar II-leiðangurisins lenti 7 mínútum eftir miðnætti að íslenskum tíma í Kyrrahafi suðvestur af San Diego í Bandaríkjunum eftir vel heppnaðan tíu daga leiðangur í kringum tunglið. Lendingin var fullkomin Daniel Robert Leeb, framkvæmdastjóri Geimvísindastofnunar Íslands og framkvæmdastjóri Rannsóknarstofnunar Íslands í geimvísindum hjá Háskóla Íslands, fylgdist spenntur með lendingu geimfarsins frá heimili sínu í Reykjavík. Hann sagði lendinguna hafa gengið eins og í sögu og verið gallalaus. „Lending Integrity var gallalaus og eins fullkomin og hún gat mögulega verið, allt frá hraða lendingarinnar, hvernig hallinn var í lendingu, og svo lendingin sjálf með fallhlífunum. Allt var eins fullkomið og best gat orðið og það var unun að fylgjast með þessu.“ Daniel var boðið að koma til Bandaríkjanna og fylgjast með því þegar geimfarinu var skotið á loft 1. apríl síðastliðinn. Hann segir það hafa verið ótrúlega lífsreynslu og mikinn heiður að fylgjast með geimskotinu ásamt fjölda annarra sem komu að geimskotinu með ýmsum hætti. „Geimskotið var bjart eins og sólin og það var ótrúlegt að finna kraftinn af höggbylgjunni þegar hún skall á okkur við geimskotið. Þetta var algerlega frábært og það er erfitt að lýsa þessari upplifun með orðum,“ segir Daniel. Bandaríkjaforseti stoltur af geimförunum Donald Trump Bandaríkjaforseti sendi geimförunum fjórum heillakveðjur í færslu á Truth Social eftir lendingu þeirra í Kyrrahafinu í kvöld. Hann sagði ferðina hafa verið tilkomumikla, lendinguna fullkomna og sem forseti Bandaríkjanna gæti hann ekki verið stoltari. Hann hlakkaði til að hitta geimfarana í Hvíta húsinu og sagði að þetta yrði endurtekið. Næsta skref væri Mars. Fréttin var uppfærð með myndskeiði af lendingunni og viðtalið við Daniel Robert Leeb.
Go to News Site