Collector
JD Vance lentur í Islamabad | Collector
JD Vance lentur í Islamabad
Fréttastofa RÚV

JD Vance lentur í Islamabad

JD Vance fékk viðhafnarmóttökur við komuna til Islamabad.AP/AP POOL / Jacquelyn Martin Varaforseti Bandaríkjanna JD Vance lenti á herstöð nærri Islamabad, höfuðborg Pakistan í morgun til að taka þátt í viðræðum um frið í Mið-Austurlöndum. Með honum í samninganefnd Bandaríkjanna er Steve Witkoff, sérlegur erindreki Bandaríkjastjórnar, og Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Stjórnvöld í Pakistan ætla að reyna að miðla málum milli Írans og Bandaríkjanna á fundum yfir helgina. Utanríkisráðherra Pakistan, Mohammad Ishaq Dar, sagði í yfirlýsingu að hann vonaðist til þess að báðar samninganefndirnar taki þátt í viðræðum á uppbyggilegan hátt og vinni saman að varanlegri lausn á deilu þjóðanna.

Go to News Site