Fréttastofa RÚV
Akureyska hljómsveitin Strákurinn fákurinn út plötu að nafninu Drengurinn fengurinn Þann 27. mars gaf. Það sem gerir útgáfuna nokkuð sérstaka er að platan er aðeins fáanleg á vínil eins og er. Hljómsveitin var stofnuð á Akureyri fyrir tveimur árum. Upphaflega var hún byggð í kringum sólóverkefni Drengsins fengsins en þróaðist fljótt í sjálfstætt samstarfsverkefni. Sveitina skipa Egill Logi Jónasson, Agnieszka Staroń og Kęstutis Balčiūnas. Nýverið bættist við fjórði meðlimurinn, Stefán Bessason, á gítar. „Það er mjög þægilegt að vera bara þrjú, svona upp á að geta verið bara í einum bíl,“ segir Egill „en svo er svo gaman að vera með fleiri gítara.“ bætir hann við. Það er alveg frelsi að það séu einhvern veginn engir tekjumöguleikar þannig séð. Egill segir að það hafi í rauninni ekki verið útpælt að gefa plötuna bara út á vínil. Hann ætlaði í fyrstu að setja hana á vefsíðuna Bandcamp en ákvað svo að hún yrði bara á vínil í bili. Planið er þó að gefa plötuna út þar á endanum og mögulega fleiri veitum. Ekki á sænsku veitunni þó. „Problematic þetta Spotify-dæmi,“ segir hann. Fyrir honum er þetta ekki tónlist sem endar á vinsældalistum heldur frekar tónlist fyrir nölla, eins og hann orðar það. Langaði að gera þetta flókið, dýrt og erfitt Platan var tekin upp í Studio Silo á Stöðvarfirði í nóvember 2025 og vínillinn var skorinn þar. Aðeins voru gerð 28 eintök en Egill segir að sveitinni hafi tekist að selja nóg til þess að vera komin í gróða. Silo varð fyrir valinu þar sem Egil langaði að vinna allt hliðrænt því hann getur nú þegar tekið sjálfur upp stafrænt á tölvu. Platan er tekin upp á 24 rása teip og var hljóðblönduð á mixer á staðnum. Að hans mati eru tölvurnar ekki jafn sjarmerandi. Það sem heillar Egil við hliðræna upptökuferlið er hljóðið og að það er ekki hægt að gera neitt fullkomið eða laga mistök eftir á að miklu leyti. Hljómsveitin gat heldur ekki valið úr mörgum tökum því aðeins tvær tökur gátu verið á hverju teipi. „Takmarkanir eru yndislegar,“ heldur Egill fram. Ég þrái að sjá mistök Plötuumslögin silkiþrykkti Egill í stúdíóinu sínu og því hefur hver plata sitt einstaka útlit. „Sérstaklega á þessum gervigreindartímum, þá langar mig alla vega frekar að sjá bara einhver mistök og eitthvað mannlegt dæmi.“ Egill var iðinn við að skjalfesta upptökuferlið á myndband sem hann birti svo á Youtube-síðunni sinni Dreamboy Syndicate, sem er jafnframt eins manns listasamlag sem hann rekur. Spurður hvort hann geri einhver tíma eitthvað sem ekki tengist list segist hann hafa farið í frí til Kanarí í desember. „Mig langaði að taka samplerinn minn með en ákvað bara að taka ekki neitt og vera bara túristi.“ Það var fyrsta fríið sem hann tók í mörg ár og honum fannst það erfitt en þó nokkur léttir. Hljómsveitin er sem stendur að æfa með nýja gítarleikaranum ásamt því að semja ný lög fyrir tvo gítara. Útgáfutónleikar verða svo einhvern tíma á Akureyri. Hljómsveitin átti að spila í Reykjavík en það gekk ekki upp vegna veðurs. Egill segist einnig vera að vinna í því að mynda einhvers konar samfélag á Akureyri. „Út af því að heimurinn er svo hræðilegur og maður fyllist svo mikilli örvæntingu og finnst maður vera svo valdalaus,“ segir hann en með því vill hann sérstaklega ná til innflytjenda á Akureyri og minnihlutahópa. „Til að þétta raðirnar gegn illsku heimsins með the power of rock og vináttu.“ Það felur meðal annars í sér að halda tónleika og hvetja fólk til þess að prófa. „Fólk er svo feimið að prófa, ég held að það sé svona mín sterkasta hlið, sem ég er búinn að þjálfa með mér, að leggja meiri áherslu á að gera hlutina en að gera þá vel,“ segir hann. Hann kannast sjálfur við að vera frosinn í því að hlutirnir þurfi að vera fullkomnir og finnast ekkert nógu gott. Draumur hans er að í ljósi gervigreindarinnar fari fólk að leita meira í apatónlist, eins og hann orðar það. Fjallað var um Strákinn fákinn í Ólátagarði á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir neðan. Ólátagarður á Rás 2 spjallaði við Egil Loga Jónasson, forsprakka hljómsveitarinnar Strákurinn fákurinn, sem gaf út sína fyrstu plötu Drengurinn fengurinn í lok mars.
Go to News Site