Fréttastofa RÚV
Rory McIlroy er með afgerandi forskot eftir tvo keppnisdaga af fjórum á Mastersmótinu í golfi í Augusta í Bandaríkjunum. McIlroy deildi efsta sætinu með Sam Burns eftir fyrsta keppnisdag og voru þeir þá báðir á fimm höggum undir pari. McIlroy, sem á titil að verja á mótinu, rauk hins vegar fram úr öllum á seinni níu holum dags tvö. Hann lék þær holur á fjórum undir pari og hringinn allan á sjö undir pari. Samtals er hann á 12 undir pari og er með sex högga forskot á Burns og Patrick Reed. Nái McIlroy að verja titil sinn kemst hann í fámennan hóp. Aðeins Jack Nicklaus, Nick Faldo og Tiger Woods hafa náð að verja titilinn á Mastersmótinu. Rory McIlroyAP / David J. Phillip
Go to News Site