Collector
Gerir ekki ráð fyrir að breyting á orðalagi myndi fresta þjóðaratkvæðagreiðslu | Collector
Gerir ekki ráð fyrir að breyting á orðalagi myndi fresta þjóðaratkvæðagreiðslu
Fréttastofa RÚV

Gerir ekki ráð fyrir að breyting á orðalagi myndi fresta þjóðaratkvæðagreiðslu

Landskjörstjórn gerir athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem bera á upp í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið í umsögn til utanríkismálanefndar Alþingis. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra gerir ekki ráð fyrir því að verði orðalagi spurningarinnar breytt muni það hafa áhrif á tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem hefur verið boðuð 29. ágúst næstkomandi. „Ég held að það sé vel hægt að vinna þetta innan þess tíma sem við höfðum ætlað okkur,“ segir hún. Hvernig er spurningin orðuð í þingsályktunartillögu? „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Svarmöguleikar: „Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu“ og „Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ Landskjörstjórn setur út á það að í orðalagi spurningarinnar felist sú forsenda að aðildarumsókn Íslands hafi ekki verið dregin til baka á sínum tíma. Það sé þó umdeilt í samfélaginu. Landskjörstjórn telur því að ekki sé hægt að slá því föstu að spurningin „geti ekki vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda“. Þá vill hún að svarmöguleikarnir séu einfaldlega „já“ eða „nei“ í stað þess að fela í sér endurtekningu spurningarinnar. Þingið hljóti að geta komið sér saman um orðalag „Það lá alltaf fyrir inni í þinglegri meðferð málsins að það gætu komið einhverjar vangaveltur um orðalag spurningarinnar. Þannig að ég geri ráð fyrir því að þetta fái vandlega yfirferð,“ segir forsætisráðherra. Að hennar mati er rúmur tími til stefnu. Kristrún segist ekki vilja gera lítið úr umfangi málsins. „Það þarf auðvitað að vera skýrt og ég hygg að þingið hljóti að geta komið sér saman um hvernig það orðalag er.“ Forsætisráðherra segist ekki hafa forsendur til að meta gildi athugasemdarinnar á þessum tímapunkti en lykilatriðið sé þó að fólk átti sig á því um hvað sé kosið. „Þetta snýst ekki um aðildarviðræður sem verður lokið heldur erum við að hefja þær. Í einhverjum tilvikum verða kaflar sem var búið að ljúka en lykilatriðið er að við munum ekki ljúka aðildarviðræðum með þessari atkvæðagreiðslu heldur hefja þær að nýju.“

Go to News Site