Collector
„Það er ekkert samfélag án barna“ | Collector
„Það er ekkert samfélag án barna“
Fréttastofa RÚV

„Það er ekkert samfélag án barna“

Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, segir ekkert samfélag geta verið án barna. Grindavíkurnefndin lýsti því yfir í gær að hún mældi ekki með því að barnafjölskyldur myndu snúa aftur til bæjarins á meðan óvissa varir. Hún segir að afstaða nefndarinnar hafi komið bæjaryfirvöldum verulega á óvart. „Það er ekkert samfélag án barna og við ætlum bara að leggja megináherslu á það að hér verði örugg byggð fyrir fjölskyldur, við erum bjartsýn á það,“ sagði Ásrún í hádegisfréttum í dag. Grindavíkurnefndin kynnti rammaáætlun sína um endurreisn Grindavíkur í gær. Þar segir að stjórnvöld þurfi að undirbúa viðbragðsáætlanir fyrir fleiri möguleg gos- og hættusvæði á Reykjanesskaga, jafnvel samtímis. Til stendur að skólahald hefjist að nýju næsta haust í Grindavík en Grindavíkurnefndin mælir hins vegar ekki með því fyrr en áhættumat gefur tilefni til. Lagðar eru til ýmsar leiðir til endurreisnar í skýrslu nefndarinnar. Styrkja þurfi leiðir sem stuðla að félagslegum tengslum Grindvíkinga og tryggja þurfi skipulagða og mælanlega eftirfylgni með félagslegum áhrifum hamfaranna. „Það eru margir mjög jákvæðir punktar í þessari skýrslu og það er talað um seiglu atvinnulífsins og mikil tækifæri sem hérna eru og það er líka talað um mikla seiglu fólksins og þennan félagsauð sem er hérna í Grindavík,“ segir Ásrún.

Go to News Site