Fréttastofa RÚV
Mörgum brá í brún í dag þegar flugvél merkt Icelandair flaug lágt yfir bæinn í dag. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að þetta hafi verið kveðjuflug flugstjóra í Eyjum. Allt hafi verið innan marka og engin hætta á ferðum, samkvæmt upplýsingum hans. Fréttastofu hafa borist myndskeið af fluginu sem sjá má hér fyrir neðan. Vestmannaeyingum brá í brún í dag þegar flugvél flaug lágt yfir bænum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir flugstjóra hafa verið að kveðja eftir 40 ár í starfi.Vestmannaeyingum brá í brún í dag þegar flugvél flaug lágt yfir bænum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir flugstjóra hafa verið að kveðja eftir 40 ár í starfi.
Go to News Site