Collector
Hákon og Kristín Embla vörðu glímutitla sína | Collector
Hákon og Kristín Embla vörðu glímutitla sína
Fréttastofa RÚV

Hákon og Kristín Embla vörðu glímutitla sína

Hákon Gunnarsson úr Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands er glímukóngur Íslands í annað sinn og Kristín Embla Guðjónsdóttir glímudrottning í fimmta sinn en þau urðu efst í 115. Íslandsglímunni sem haldin var í Búðardal í dag. Hákon hlýtur því Grettisbeltið, elsta verðlaunagrip Íslands en beltið var fyrst afhent 1906. Freyjumenið, sem Kristín Embla ber, er öllu yngra því fyrst var keppt um það árið 2000. Þau unnu bæði allar sínar glímur og því vel að titlunum komin. Efstu þrír í karlaflokki: Hákon Gunnarsson, UÍA Þórður Páll Ólafsson, KR Gústaf Sæland, KR Efstu þrjár í kvennaflokki: Kristín Embla Guðjónsdóttir, UÍA Sigurdís Sóley Lýðsdóttir, GFD Lovísa Ýr Jóhannsdóttir, HSK

Go to News Site