Fréttastofa RÚV
Undankeppni HM er deildaskipt í fyrsta sinn og er Ísland í A-deild. Liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum gegn Spáni og Englandi í mars. Aðeins efsta lið riðilsins kemst beint á HM en hin þrjú öll í umspil og þá gegn misöflugum andstæðingum. Neðsta liðið fellur svo í B-deild fyrir næstu Þjóðadeild og það vill íslenska liðið forðast. „Við þurfum að sækja sex stig,“ sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. „Ég held að það sé það eina í stöðunni.“ „Þær eru með mjög beinskeitt lið,“ sagði Hlín Eiríksdóttir um Úkraínu. „Þannig að þetta verður hörkuleikur en vonandi verðum við meira með boltann en í síðasta glugga.“ Ísland mætir Úkraínu á þriðjudag klukkan 18:30 og er leikurinn sýndur beint á RÚV 2. Síðari leikur þessa glugga er svo gegn tvöföldum Evrópumeisturum Englands á laugardaginn kemur.
Go to News Site