Fréttastofa RÚV
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri Icelandair, segir lágflug yfir Vestmannaeyjabæ fyrr í dag litið grafalvarlegum augum. „Þetta var ekki gert með neinu leyfi frá okkur og þetta var algjörlega gert án okkar vitneskju.“ Farþegavél í áætlunarflugi frá Frankfurt var flogið mjög lágt yfir Vestmannaeyjabæ í dag. Íbúum brá í brún, hús skulfu og hávaði var mikill. Ekki liggur fyrir hve lágt vélin hafi flogið yfir bænum og hvort það hafi verið undir viðmiðum um lágflug eða ekki. „Við erum að rannsaka það mál,“ segir Linda. „Þetta er eitthvað sem við munum skoða alvarlega og við lítum alvarlegum augum.“ Biðja Vestmannaeyinga afsökunar Hún telur þó ekki hafa verið verulega hættu á ferðum. „En þetta er utan þess ramma sem við höldum okkur innan í hefðbundnu áætlunarflugi.“ Icelandair biður Vestmannaeyinga afsökunar á athæfinu. Lög gilda um lágmarkshæð yfir byggð en Linda segir það ekki liggja fyrir hvort þau hafi verið brotin. „Þetta er síðasta flug viðkomandi flugstjóra fyrir starfslok vegna aldurs.“ Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, sagði við fréttastofu fyrr í dag að eftir því sem hann best vissi hefði flugið verið innan marka. Nú er hins vegar ljóst að það er ekki víst. Farþegavél í áætlunarflugi frá Frankfurt var flogið mjög lágt yfir Vestmannaeyjabæ í dag. Yfirflugstjóri segir málið litið alvarlegum augum. „Þetta var ekki gert með neinu leyfi frá okkur.“
Go to News Site