Collector
Mikill áhugi á útboði framkvæmda við sjúkrahúsið | Collector
Mikill áhugi á útboði framkvæmda við sjúkrahúsið
Fréttastofa RÚV

Mikill áhugi á útboði framkvæmda við sjúkrahúsið

Opnað var fyrir útboð á fyrsta áfanga framkvæmda við SAk 25. mars. Fyrir liggja miklar framkvæmdir en fyrsti áfangi er jarðvegsvinna og malbikun á stóru svæði á sunnanverðri lóðinni. Settur forstjóri SAk, Erla Björnsdóttir, fagnar því að þetta sé farið af stað: „Já það er náttúrulega gríðarlega stór áfangi að það sé búið að auglýsa eftir tilboðum í útboðsverkið. Þetta er langþráð verkefni og mjög verðmætt fyrir okkur að sjá að framkvæmdir séu að fara í gang og það virðist vera mikill áhugi og við vonum það besta að það verði mörg tilboð,“ segir Erla. Kynningafundur fyrir verktaka á verkinu var á SAk nýverið og það var vel mætt. Mikill áhugi er á útboðinu sem er opið til 29. apríl á útboðsvef ríkisins „Mörg fyrirtæki hafa sótt gögnin í útboðskerfið. Þannig það lítur út fyrir að vera mikill áhugi,“ segir Erla. Ljóst er að mikið verk er fyrir höndum en stækka á sjúkrahúsið til suðurs og á ný bygging að hýsa legudeildir skurðlækninga, lyflækninga og geðlækninga ásamt því að þar verði dag- og göngudeildir geðdeildar. Erla er bjartsýn á að framkvæmdir geti hafist fljótlega, jafnvel strax í næsta mánuði: „Við stefnum náttúrulega á eða vonumst til að skóflustungan verði í maí.“

Go to News Site