Fréttastofa RÚV
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra telur eðlilegt að Landskjörstjórn hafi gert athugasemdir við svarhluta spurningarinnar sem borin verður upp í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB. Það breyti þó ekki dagsetningu atkvæðagreiðslunnar. „Það er alveg skýrt að málið, þjóðaratkvæðagreiðslan, snýst um það hvort að íslenska þjóðin segi já við því að halda og klára samninga við Evrópusambandið eða nei hún vilji ekki sjá samning við Evrópusambandið.“ Landskjörstjórn taldi ekki hægt að slá því föstu að orðalag spurningarinnar hefði ekki áhrif á afstöðu kjósenda. Vísað var til þess að orðalagið beri með sér að aðildarumsókn Íslands hafi ekki verið dregin til baka á sínum tíma, sem sé umdeilt í samfélaginu. Því hafi verið lagt til að orðalagi verði breytt. Dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB stendur óbreytt þrátt fyrir athugasemdir landskjörstjórnar, að mati utanríkisráðherra. Hún segir skýrt um hvað málið snýst. „Ég held að það sé mjög eðlilegt að þingið fari vel yfir það og aðrar ábendingar en stóra málið er að við erum að fara einstaka lýðræðislega leið hér á Íslandi. Við erum að bjóða þjóðinni í rauninni upp á tvöfalda atkvæðagreiðslu um þetta risamál.“ Þorgerður telur ekki að þetta hafi áhrif á tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. „Ég sé það ekki gerast, en eins og ég segi, ég vil undirstrika ég ber mikla virðingu fyrir þinginu. Málið er núna í höndum þingsins og þau eru að vinna úr athugasemdum en ég geri ekki ráð fyrir að það hafi áhrif á tímasetninguna sem slíka.“
Go to News Site