Collector
Sjáðu markið: Bikarmeistararnir síðasta liðið í 16-liða úrslitin | Collector
Sjáðu markið: Bikarmeistararnir síðasta liðið í 16-liða úrslitin
Fréttastofa RÚV

Sjáðu markið: Bikarmeistararnir síðasta liðið í 16-liða úrslitin

Lokaleik 32-liða úrslita Mjólkurbikars karla lauk með 1-0 sigri Vestra á Leikni Reykjavík. Imran Mehanovic skoraði eina mark leiksins á 86. mínútu eftir varnarmistök hjá Leiknismönnum. Hér má sjá mark Vestra í dag: Vestri er komið í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 1-0 sigur á Leikni Reykjavík. Leikurinn átti að vera síðustu helgi en var frestað vegna veðurs. Vestri er ríkjandi bikarmeistari og mætir Gróttu í næstu umferð. Vestri hefur titil að verja en féll í fyrra úr efstu deild og er því í næstefstu deild eins og Leiknir. Liðið mætir öðru liði úr Lengjudeildinni í 16-liða úrslitunum; Gróttu. 16-liða úrslitin verða spiluð 13. og 14. maí. Þar eru sjö lið úr Bestu deildinni og níu úr Lengjudeildinni. 16-liða úrslitin ÍA – Grindavík Afturelding – Njarðvík HK – Víkingur Stjarnan – KR Þróttur – Breiðablik KA – Ægir Fylkir – FH Vestri – Grótta

Go to News Site