Collector
Lágflugið tilkynnt til lögreglu | Collector
Lágflugið tilkynnt til lögreglu
Fréttastofa RÚV

Lágflugið tilkynnt til lögreglu

Icelandair hefur tilkynnt lágflug flugvélar yfir Vestmannaeyjum í dag til lögreglu og Samgöngustofu. Þetta staðfestir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi flugfélagsins, við fréttastofu. Farþegavél í áætlunarflugi frá Frankfurt var flogið mjög lágt yfir Vestmannaeyjabæ í dag með þeim afleiðingum að mörgum íbúum brá í brún. Um var að ræða síðasta flug viðkomandi flugstjóra fyrir starfslok vegna aldurs. Guðni segir málið auðvitað verða skoðað innanhúss en það sé lögreglunnar og Samgöngustofu að taka ákvörðun í málinu. Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri Icelandair, bað Vestmannaeyinga fyrr í kvöld afsökunar á athæfinu. Hún sagði lágflugið ekki hafa verið gert með leyfi frá flugfélaginu.

Go to News Site