Collector
Tindastóll flaug í undanúrslit – Valur með eins stiga sigur | Collector
Tindastóll flaug í undanúrslit – Valur með eins stiga sigur
Fréttastofa RÚV

Tindastóll flaug í undanúrslit – Valur með eins stiga sigur

Tindastóll er fyrsta liðið til að komast í undanúrslit Bónusdeildar karla í körfubolta. Liðið vann l ÍR í kvöld, 125-87 , og þar með einvígið 3-0. Það munaði einungis 4 stigum á liðunum í hálfleik, 52-48. Sauðkrækingar unnu þriðja leikhluta 43-11 og sigurinn öruggur eftir það. Taiwo Badmus var stigahæstur Tindastóls með 25 stigRÚV / Mummi Lú Ótrúleg lokasekúnda Á Hlíðarenda hafði Valur betur gegn Keflavík, 79-78. Gestirnir voru með yfirhöndina framan af og voru sjö stigum yfir í hálfleik en Valsarar komust yfir í þriðja leikhluta. Remy Martin kom Keflvíkingum tveimur stigum yfir þegar minna en sekúnda lifði leiks en einhvern veginn tókst Kára Jónssyni að skora þriggja stiga körfu og Valur leiðir nú einvígið 2-1. Kári Jónsson skoraði flautukörfu fyrir ValMummi Lú

Go to News Site