Fréttastofa RÚV
Afstaða Grindavíkurnefndar sem kynnt var í skýrslu í gær um að barnafjölskyldur flytji ekki í bæinn og að skólastarf hefjist þar ekki í haust, eins og til stendur mælist misvel fyrir hjá Grindvíkingum - en í skýrslunni eru tilteknar ýmsar leiðir til að endurreisa mannlíf og atvinnu í bænum. „Við höfum alveg greint þessa andstöðu frá yfirvöldum; Grindavíkurnefndinni og yfirvöldum. En það er ekkert samfélag án barna,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur. Að missa heimilið stærra en rýmingin Í skýrslunni segir að rýmingin á bænum hafi haft áhrif á líðan barnanna og að forðast eigi að setja þau aftur í slíkar aðstæður. Það er ekki hægt að byggja bæinn upp án barna - segir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur. Móðir segir tilmæli Grindavíkurnefndar um að börn búi ekki í bænum brot á mannréttindum „Klárlega er það sjónarmið. En við teljum þetta vera forræðishyggju. Við vinnum mismunandi úr áföllum og mér finnst að foreldrar ættu að hafa þetta frelsi: velja það sem er sér og sínum börnum fyrir bestu,“ segir Ásrún. „Fyrir mína parta var rýmingin ekki stóra málið, heldur að við misstum heimilið okkar. Það er stóra áfallið hjá Grindvíkingum,“ segir Valgerður Ágústsdóttir. Hún er þriggja barna móðir, hún bjó í Grindavík, en flutti í Reykjanesbæ eftir rýmingu og dvelur í Grindavík um helgar. Hún segist afar ósátt við þau sjónarmið sem fram koma í skýrslunni. Brot á mannréttindum „Það er rosalega vont þegar maður finnur að það sé verið að taka valdið af manni. Að mér sé ekki treyst til að taka ákvarðanir fyrir mig og mín börn og mína fjölskyldu,“ segir Valgerður. „Mér finnst þetta bara brot á mannréttindum, að meina okkur um að flytja heim.“ Nú býrðu ekki sjálf hér í bænum en dvelur hér mikið: ertu einhverntímann hrædd um börnin þín? „Nei, ég er það ekki.“ Spurð hvort hún telji að þetta sjónarmið og viðhorf gagnvart barnafjölskyldum í Grindavík geti haft þau áhrif að fólk snúi síður til baka í bæinn segist Ásrún telja það. „Það mun hafa áhrif á það. Það er ekki spurning.“
Go to News Site