Collector
Mikil mótmæli hamla eldsneytisdreifingu | Collector
Mikil mótmæli hamla eldsneytisdreifingu
Fréttastofa RÚV

Mikil mótmæli hamla eldsneytisdreifingu

Ríkisstjórn Írlands heldur aukaríkisstjórnarfund í dag sunnudag þar sem gefin verður uppfærsla á stöðu viðræðna vegna yfirstandandi eldsneytiskreppu og mótmælaaðgerðum vegna eldsneytisverðs þar í landi. Bændur og vöruflutningabílstjórar hafa mótmælt hækkandi bensínverði fimm daga í röð með því að setja upp vegatálma og hindra dreifingu eldsneytis um landið. Mótmælendur krefjast þess að ríkisstjórnin lækki eldsneytisverð. Hundruð bensínstöðva á Írlandi eru eldsneytislausar því mótmælaaðgerðirnar hafa tafið og hægt á dreifingu á eldsneyti víða um land. Írska lögreglan notaði í dag piparúða á mótmælendur og handtók þó nokkra en þeir höfðu stöðvað olíudreifingu frá Whitegate, einu olíuhreinsunarstöð Írlands, í þrjá daga. Stjórnvöld undirbúa aðgerðarpakka Fulltrúar mótmælenda hafa fundað með ráðherrum til að reyna að leysa deiluna og ná samkomulagi um aðgerðarpakka stjórnvalda, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC . Heimildir írska ríkisútvarpsins RTE herma að aðgerðarpakki stjórnvalda feli meðal annars í sér beinar greiðslur til flutningafyrirtækja, bænda og verktaka til að bregðast við hækkun eldsneytisverðs. Greiðslurnar eru sagðar eiga að ná allt að mánuð aftur í tímann en þetta sé tímabundin aðgerð stjórnvalda sem verði endurskoðuð. Eldsneytisskortur farinn að hafa áhrif Mótmælin og skortur á eldsneyti hafa sett mark sitt á daglegt líf sums staðar á Írlandi. Miklar raskanir hafa orðið á þjónustu strætó í höfuðborginni Dublin og rútufyrirtækið Bus Éireann hefur varað við töfum á samgöngum til og frá flugvöllum í Shannon og Dublin. Heilbrigðisráðherra Írlands, Jennifer Carroll MacNeill, sagði í viðtali við RTE að allir sjúkraflutningabílar séu með fulla tanka af eldsneyti og þeir hafi forgang að eldsneyti. Hún sagði það áhyggjuefni ef mótmælin halda áfram því þá gæti ástandið farið að bitna á því hvernig og hvort sjúkraflutningafólk kemst til vinnu.

Go to News Site