Fréttastofa RÚV
Guðjón Þorgils Kristjánsson, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í Háskólabíó í kvöld. Guðjón flutti lagið Strange eftir Celeste en hann söng lagið á íslensku við eigin texta, sem ber heitið „Ég skil ekki neitt.“ Í öðru sæti voru Baldur og Sverrir frá Verslunarskóla Íslands með lagið „Way down we go“ og í þriðja sæti var Katla Líf frá Menntaskólanum í Reykjavík með lagið „Lúxus líf.“ Alls tóku söngvarar frá 25 framhaldsskólum þátt í keppninni í ár. Dómnefndina skipuðu Helgi Björnsson, Bríet og Þormóður Egilsson og gilti val þeirra til helmings á móti atkvæðum í sms-kosningu áhorfenda. RÚV sýndi keppnina í beinni útsendingu og hér fyrir neðan má sjá Guðjón flytja lag sitt. Guðjón Þorgils Kristjánsson bar sigur úr bítum í keppninni sem fram fór í Háskólabíói í kvöld. Alls tóku söngvarar frá 25 framhaldsskólum þátt í keppninni í ár.
Go to News Site