Fréttastofa RÚV
Kona í St. Volodomyr-dómkirkjunni í Kyiv í gær, 11. apríl. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / SERGEY DOLZHENKO Þrír sjúkraflutningamenn særðust í drónaárás rússneska hersins í Sumy-héraði í Úkraínu í nótt samkvæmt úkraínska fjölmiðlinum Kyiv Independent . Árásirnar eru brot á samkomulagi um vopnahlé sem Rússar og Úkraínumenn samþykktu vegna páskahátíðarinnnar. Yfir 400 árásir hafa verið tilkynntar sem áttu sér stað eftir að vopnahléið tók gildi klukkan 4 síðdegis í gær. Páskadagur er haldinn hátíðlegur í rússnesku og úkraínsku rétttrúnaðarkirkjunni í dag og vopnahléið á að gilda fram á miðnætti í kvöld.
Go to News Site