Collector
Nýi brekkusöngvarinn með mörg járn í eldinum | Collector
Nýi brekkusöngvarinn með mörg járn í eldinum
Fréttastofa RÚV

Nýi brekkusöngvarinn með mörg járn í eldinum

„Þetta er búið að vera stórkostlegt ár,“ segir Ágúst Þór Brynjarsson um árið sem liðið er frá því að hann tók þátt í Söngvakeppninni í fyrra. Þorri þjóðarinnar kynntist honum þar í fyrsta sinn. Ágúst er með mörg járn í eldinum, var nýlega kynntur sem nýr brekkusöngvari á Þjóðhátíð í Eyjum og vinnur að plötu sem kemur út í lok apríl. Ágúst býr á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit og unir hag sínum vel. „Þú bara sérð það, það er hérna allt sem þú þarf í hvað getum við sagt, 50 metra radíus. Raðhúsið mitt, leikskólinn, grunnskólinn, sund, rækt, félagsheimilið.“ Ágúst flutti lag af nýju plötunni, sem hann gerði ásamt Unu Torfa, í Miðstöðinni. Lagið heitir inn í síðustu nóttina. Sjáðu viðtalið og flutninginn í spilaranum hér fyrir ofan. Miðstöðin er nýr þáttur, öll fimmtudagskvöld, á RÚV.

Go to News Site