Collector
Útlit fyrir kosningasigur stjórnarandstöðunnar en óvíst með valdaskipti | Collector
Útlit fyrir kosningasigur stjórnarandstöðunnar en óvíst með valdaskipti
Fréttastofa RÚV

Útlit fyrir kosningasigur stjórnarandstöðunnar en óvíst með valdaskipti

Hatrammri baráttu fyrir þingkosningarnar er lokið hér í Ungverjalandi og búast má við að milljónir Ungverja greiði atkvæði sitt í kjördeildum sem opnaðar voru eldsnemma í morgun. Þeim verður lokað um kvöldmatarleytið (17.00 að íslenskum tíma), og skömmu síðar ættu útgönguspár að birtast. Fyrstu tölur gætu farið að birtast seinna í kvöld og ef eitthvað er að marka óháðar skoðanakannanir sem birst hafa undanfarna daga og vikur, þá gæti Tisza-flokkurinn með Peter Magyar í fararbroddi, verið að hrósa sigri einhvern tímann með kvöldinu. Magyar verður á stórri útisamkomu flokksins á bökkum Dónár í Búdapest í kvöld og væntir þess örugglega að geta lýst yfir endalokum valdatíðar Viktors Orbans, sem verið hefur forsætisráðherra Ungverjalands undanfarin sextán ár. Kosningakerfi sem hentar valdhöfum En þótt stjórnarandstaðan fái ef til vill fleiri atkvæði en Orban og Fidez-flokkur hans, þá er ekki þar með sagt að Peter Magyar verði næsti forsætisráðherra Ungverjalands; síðan 2011 hefur stjórnarflokkurinn, í krafti yfirburðastöðu sinnar á ungverska þinginu, gert stjórnarandstöðuflokkum erfitt fyrir að ná fótfestu. Af 199 þingsætum á ungverska þinginu ráðast 106 í einmenningskjördæmum, en 93 eru valin á landsvísu - og Ungverjar sem búa erlendis eru með atkvæðarétt í þeim hluta kosninganna. Atkvæði flokksins sem tapar í einmenningskjördæmi renna inn í kjörið á landsvísu, og einnig atkvæði flokksins sem sigrar þar - og það hefur oft og tíðum hjálpað Fidez-flokknum. Stjórnarflokkurinn hefur einnig markvisst auðveldað Ungverjum og fólki af ungverskum uppruna sem býr erlendis að greiða atkvæði, sem einnig hefur hjálpað Fidez. Allt til að styðja við stjórnarflokkinn „Ríkisstjórnin gerði hundruð breytinga á kosningalögunum fyrir hverjar einustu kosningar, í sumum tilfellum eftir að hafa séð hvernig stjórnarandstaðan var að skipuleggja baráttuna fyrir næstu kosningar; þá voru gerðar smáar eða stærri breytingar til að styðja við stjórnarflokkinn,“ segir Zsuzsanna Szelényi, stjórnandi hjá Central European University og höfundur bóka um ungverskt stjórnarfar. Szelényi var eitt sinn þingkona fyrir Fidez-flokkinn en sagði skilið við hann fyrir mörgum árum og er gagnrýnin á það stjórnarfar sem viðgengist hefur í Ungverjalandi undanfarin ár. Hún ræddi við hóp blaðamanna í Búdapest fyrir kosningarnar. „Þetta er ástæðan fyrir því að ÖSE (Öryggis og Samvinnustofnun Evrópu) hefur sagt að kosningar í Ungverjalandi séu frjálsar, en ekki sanngjarnar,“ segir Szelényi. Hún bendir einnig á að stjórnarflokkurinn ráði yfir nánast öllum helstu fjölmiðlum í Ungverjalandi, þar á meðal ríkisfjölmiðlum og sagði okkur til að mynda að Peter Magyar, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, hefur aldrei verið boðið að tala í ungverska ríkissjónvarpinu. Þessi aðstöðumunur hefur einnig komið í ljós í úttektum samtaka á borð við RSF (Blaðamenn á landamæra) og skýrslum á vegum Evrópuþingsins. „Undanfarin sextán ár hefur stjórnarflokkurinn skapað sitt eigið hagkerfi - kostað af opinberu fé, þar sem fólk gat komist í miklar álnir. Margir þeirra keyptu síðan ungverska fjölmiðla og sneru þeim í áróðursmiðla fyrir stjórnvöld.“ segir Szelényi. „Núna getum við fullyrt að um áttatíu prósent af ungverskum fjölmiðlum - þar með talið fjölmiðlar í almannaeigu - eru undir stjórn fólks sem er hliðhollt stjórnvöldum. Við erum líka að tala um að meira en fimm hundruð fjölmiðlar, áhrifavaldar og aðrir, taka sameiginlega við ritstjórnarlegum fyrirmælum um umfjöllun, og þetta er einstakt í Evrópu. Frjálsir og óháðir miðlar eru vissulega til staðar, en þeir eru nánast eingöngu á netinu, en yfirráð stjórnvalda yfir hefðbundnum miðlum gerir þeim kleift að koma sínum skilaboðum fljótt og örugglega á framfæri við almenning. Fólkið í kringum Fidez-flokkinn á einnig stóran hluta af þeim fyrirtækjum sem setja upp auglýsingar á almannafæri.“ Það er auðvitað ástæðan fyrir því að bæði hér í Búdapest og enn frekar á landsbyggðinni, eru auglýsingaskilti Fidez-flokksins mun meira áberandi en þau sem Tisza-flokkurinn hefur sett upp; þetta er eitt af því fyrsta sem maður tekur þegar maður kemur til Búdapest. Þótt flestar óháðar kannanir bendi til sigurs stjórnarandstöðunnar í þingkosningunum í Ungverjalandi í dag, er óvíst hvort hún nái raunverulegum völdum. Flókið kosningakerfi sem hentar stjórnarflokknum gæti staðið í vegi fyrir því.

Go to News Site