Collector
Farþegi segir ítrekað klappað um borð í lágfluginu | Collector
Farþegi segir ítrekað klappað um borð í lágfluginu
Fréttastofa RÚV

Farþegi segir ítrekað klappað um borð í lágfluginu

Farþegum um borð í vél Icelandair sem var flogið lágt yfir Vestmannaeyjum í gær var tilkynnt fyrirfram um lágflugið. Það var ekki með vitund félagsins og yfirflugstjóri segir að líklega hefði ekki verið gefin heimild fyrir því. Málið er á borði lögreglu og Samgöngustofu. Farþegi segir þetta hafa verið stórkostlega upplifun. Fékk leyfi frá Avians Vélin var á leið frá Frankfurt til Keflavíkur og samkvæmt upplýsingum frá Avians, sem sinnir flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, hafði flugstjórinn óskað eftir breytingu á flugleið og það var samþykkt. Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri Icelandair segist ekki vita til þess að farþegar eða Vestmannaeyingar hafi haft samband við félagið og kvartað undan lágfluginu. Hún segir að farþegar hafi verið látnir vita hvað stæði til. „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef þá tilkynnti flugstjóri í gegnum hátalarakerfi vélarinnar að það yrði flogið í lágflugi yfir Vestmannaeyjar,“ segir Linda. Flugstjóri flugvélar Icelandair sem flaug lágflug yfir Vestmannaeyjum í gær fékk leyfi til að breyta út frá flugleið. Farþegar voru látnir vita hvað til stæði, einn þeirra segir þetta hafa verið stórkostlega upplifun. Óvíst hversu lágt var flogið Sagði hann hvers vegna hann ætlaði að gera það? „Ég tel að hann hafi gert það, sagt að þetta væri síðasta flug fyrir starfslok.“ Hversu lágt var flogið? „Við höfum ekki nákvæmar upplýsingar um það ennþá, það eru flugritagögn sem við munum hafa aðgang að á næstu dögum sem munu segja okkur það.“ Nú hafa birst fjöldi mynda og vídeóa af þessu. Er ekki hægt að áætla af því í hvaða hæð var flogið? „Það er hægt að draga ályktanir. En við fáum nákvæmari upplýsingar úr flugritagögnum vélarinnar.“ Getur þú sem yfirflugstjóri Icelandair dregið ályktun af þessum gögnum, í hvaða hæð var flogið? „Nei, það er ekki faglegt að draga ályktanir af myndum. Þær geta verið blekkjandi,“ segir Linda. Ólíklegt að leyfi hefði verið veitt Hún segir að Samgöngustofa hafi óskað eftir öllum gögnum varðandi flugið. „ Síðan munum við skoða þetta innanhúss og hvers vegna var vikið frá hefðbundnum flugferli vélarinnar.“ Eru starfslok eins starfsmanns tilefni til að víkja frá flugáætlun? „Við teljum svo ekki vera.“ Hefði hann sótt um þetta leyfi, er líklegt að það hafi verið veitt? „Við teljum ekki líklegt að það hafi verið veitt.“ Gert af góðum hug sem gjöf „Frá mínum sjónarhóli sem farþega var þetta hreint út sagt stórkostleg upplifun,“ segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir fyrrverandi alþingismaður sem var meðal farþega í vélinni. „Þetta var mjög vel og fallega kynnt, að þetta væri síðasta flug flugstjórans eftir áratugalangan farsælan feril. Til að þakka honum fyrir allt hans framlag myndu farþegar fá að fljúga yfir heimabæ hans Vestmannaeyjar í fallegu útsýni. Það var ítrekað klappað fyrir þessu í flugvélinni. Þannig að það var allavegana ljóst þarna inni í flugvélinni að þetta var gert af góðum hug sem gjöf, að fá að njóta einstaks útsýnis yfir Ísland og Vestmannaeyjar í þessu síðasta flugi. Allir farþegar í kringum mig voru snortnir, þakklátir og glaðir,“ segir Guðfríður Lilja. Slíkt agabrot verði ekki liðið Arnar Már Magnússon framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair sendi öllum starfsmönnum tölvupóst í gær þar sem segir að svo virðist sem flogið hafi verið niður fyrir leyfilegar hæðartakmarkanir. Flugstjórinn hafi ákveðið upp á sitt einsdæmi að fljúga kveðjuflug yfir Vestmannaeyjar og slíkt agabrot verði ekki liðið. Málið verði rannsakað frekar innanhúss og lögfræðingar félagsins hafi tilkynnt það til lögreglu, samkvæmt tölvupósti framkvæmdastjórans.

Go to News Site