Fréttastofa RÚV
Sjálfkjörið verður til sveitarstjórna í Vopnafjarðarhreppi, Snæfellsbæ, Tjörnes- og Kjósarhreppi í maí. Framlengdur framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga rann út í nokkrum sveitarfélögum á hádegi, þar sem einungis einn listi var boðinn fram fyrir almennan framboðsfrest á föstudag. Í Vesturbyggð og Árneshreppi bárust listar innan framlengds framboðsfrests en þá á enn eftir að yfirfara af kjörstjórnum. Allt ætti að vera ljóst um miðja viku Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar segir að þar sem fleiri listar bárust og geti kjörstjórnir veitt aukinn frest til að koma að frekari gögnum ef á þarf að halda. Sá frestur er að hámarki fjórir sólarhringar. „En svo þegar fresturinn rennur út þá liggur það yfir kjörstjórninni að úrskurða um gildi framboðsins og þá kemur í ljós hvort það, ef það er úrskurðargilt þá myndi það þá vera framboð í sveitarstjórnarkosningunum í vor,“ segir Ástríður. Því ættu að liggja fyrir endanlegar niðurstöður um öll framboð í síðasta lagi um miðja viku.
Go to News Site