Fréttastofa RÚV
Fyrsta leik dagsins í Bestu deild karla í fótbolta lauk með 1-1 jafntefli ÍBV og FH. Eyjamenn voru meira með boltann í fyrri hálfleik og á 35. mínútu skoraði Viggó Valgeirsson. Kjartan Kári Halldórsson klúðraði vítaspyrnu fyrir FHRÚV / Mummi Lú FH-ingar sóttu í sig veðrið í seinni hálfleiknum og á 72. mínútu fengu þeir víti þegar Bjarki Björn braut á Baldri Kára. Kjartan Kári Halldórsson tók vítið en Marcel Zapytowski varði. Kári Kristjánsson jafnaði þó fyrir Hafnfirðinga á 80. mínútu og bæði liðin fá sín fyrstu stig í fyrsta leik sínum. Aðrir leikir í dag: 17:00 KR - Keflavík 17:00 Valur - Þór 17:00 KA - Stjarnan 19:30 Fram - ÍA
Go to News Site